Sælt veri fólkið!
Jæja þá er mín komin í helgarfrí og þá léttist alltaf brúnin á gömlu og hún hressist við. Úff hvað það er alltaf erfitt eitthvað að vera á næturvöktum. Guð minn góður hversu geðgóður maður verður og ekki veitir af, því ég er einstaklega geðgóð fyrir hahahaha
En sem sagt héðan allt gott að frétta bara eins og vanalega, allir hressir og kátir hér að vanda, þýðir víst lítið annað. Axel búinn að skila og svona, þannig að það er bara vörnin eftir (get nú samt ekki sagt BARA) þar sem það er nú líka stór partur af þessu öllu. En það verður 20 og þá eru þessi tvö skólaár liðin hjá félaganum.
Já talandi um það, ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða allt saman, áður en maður veit af verður maður komin á elliheimilið... Já þetta er sko ekkert grín. Ég sá fram á lengstu 2 ár ævi minnar væru hér í DK, en þetta er búið að líða svo hratt að maður hreinlega hefur ekki tekið eftir því. Ótrúlegt en satt. En svona er þetta bara, ætli maður geti ekki sagt bara að manni líði ágætlega hér, þar sem maður er nú ekki ennþá að telja dagana í heimferð.. Eins og var hér fyrst þegar maður kom hingað út. Maður lærir alltaf á einhverjum svona hlutum og heldur betur hefur maður lært af þessu. Eitt getur maður allavega státað sig af, jú jú kartöflumálinu hahahah

Já pæliði bara í þessu, nú erum við að verða búin að vera hér í 2 ár. Ég hef enga sérstaka löngun til að fara aftur heim strax. En maður veit svo sem ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Það fer bara allt eftir því hvað gerist í málum Axels!
Já núna sit ég bara með tárin í augunum liggur við, þar sem ég veit af Huldu systir á James Blunt tónleikum heima á klaka, langaði svooo mikið með, en ég get nú sagt ykkur það að ég sit og hlusta á Bon Jovi... hahah já er á leðinni á tónleika með honum á fimmtudaginn í næstu viku... omg hvað ég hlakka til... þá verður sko potttétt hugsað heim til Huldu og minngar rifjaðar upp frá því þegar við áttum heima saman í Noregi.... já já maður er sko að verða gamall (aftur kem ég að því) já þá vorum við að hlusta á "Bed of Roses" "Always" og fleiri hits... omg manstu eftir þessu.? Takk fyrir að hringja í mig.... þú ert perla....

ooo ég vona svo innilega að hann taki lagið Halleluja... þá fer ég fyrst að grenja hahahaha

En já það er brjálað að gera hjá manni eins og vanalega, er að fara í "kostundervisning" um helgina, já alla helgina ooo shit hvað ég nenni því engan veginn. Ætlaði reyndar að eyða sunnudeginum í timburmennsku. Því ég er að fara í afmæli, já Ranný vinkona á afmæli í dag (Elsku Ranný mín innilega til hamingju með AFMÆLIÐ í dag) og Ívar maðurinn hennar Eddu ætla að halda smá teyti á laugardaginn. Þannig að omg er ég eitthvað að meika það að fara í skólann. Það er nú ekki mikið sem ég ekki veit í þessu kost drasli. Ekki mikill aðdáendi en læt mig hafa það þrátt fyrir allt. Jú jú þetta er víst partur af prógramminu og eins gott að maður skrópi nú ekki of mikið. En ég reikna með því að vera með magapest á sunnudag. Alltaf góð afsökun. Eins gott að kennarinn sé ekki Íslenskur og að lesa þetta hahaha
Fannar minn er bara hress og kátur, enda ekki við öðru að búast, þeir eru nú svo glaðir þessir drengir mínir (enda fá þeir það frá geðgóðu mömmunni) Já hann og liðið hans eru komnir í úrslitaleik í bikarnum. Stórleikurinn fer fram á þriðjudaginn og að sjálfsögðu er ég að vinna. Svo sem ekki að spyrja að öðru. En ég verð að finna einhverja lausn á því. Svo er bara leikur hjá honum á morgun og svo næsta laugardag. Svo er piltur kominn í sumarfrí í fótboltanum. Hann ætlar nú ekki að taka sér mikið frí. Það er nefnilega búið að panta far fyrir drenginn til Íslands, því hann ætlar að fá að taka þátt á N1 mótinu með gömlu liðsfélögum sínum í Þór. Úff þegar ég pantaði farið fyrir hann í dag umturnaðis hann, var stressaður og æstur maður. En það eru bara merki um að hann hlakki mikið til og ekki lái ég honum það. Það verður bara gaman fyrir hann að fara heim og keppa og hitta alla. Þá getur hann leyft föðurfjölskyldunni að njóta næruveru sinnar....

Benedikt er náttúrulega bara kátur og ligeglad eins og daninn. Enda frekar danskur greyið í alla staði. Fleiri og fleiri orð sem pilturinn er farinn að segja bara á dönsku og veit varla hvert íslenska orðið er, en það er bara krúttlegt. Hann á bara eftir 3 vikur á leikskólanum þegar þessi vika er búin. Já já segjið enn og aftur kem ég að þessum parti (omg maður er orðinn gamall) Þannig að nú er bara litli, stóri drengurinn minn að fara byrja í skóla. Já já þetta líður víst allt saman og ekkert við því að gera. Við erum á fullu að reyna að kenna honum stafina. Hann er nú búinn að ná því hvað stafirnir heita og nánast búinn að læra að þekkja þá. Þannig fram að skóla ætlum við að reyna að fá hann til að æfa sig í að skrifa þá. Hann er nú ekki einn sá áhugasami þegar kemur að því að þurfa að setjast niður og dútla í einhverju svona. Vill heldur bara fara út í fótbolta eða út að leika sér bara með sjálfum sér og dýrunum í náttúruinni. Köngulónum og svona hahaha
já eins og þið sjáið þá er helling um að vera hér á bæ, og allir einstaklega hressir í þrumuveðrinu sem er búið að vera hér í dag... Já eftir allt þetta geggjaða veður komu bara þrumur... úff púff.. Það er eins gott að það komi aftur gott veður sko.... haha
Jæja kæru vinir njótið vitleysunnar í mér og við heyrumst síðar....

ykkar Ása M